24.01.2007 23:56:15 / b-vakt
Jæja gott fólk það þýðir ekki endalaust að tala um einhvern
hitting en gera ekkert í því....Þar sem fólk virðist ekki vera
neitt sérstaklega æst í að bjóða fram húsin sín fyrir eitt stykki
gott B-vaktar partý þá hefur komið upp sú hugmynd að hittast öll á
Barnum laugardaginn 3.febrúar kl 21:00. Þar sem við erum líklega
ekki það mörg sem komum til með að mæta var planið að leigja ekki
endilega hluta staðarins heldur bara fjölmenni á efstu hæðina og
fæla aðra í burtu
Eru ekki allir með???
Kveðja Áslaug
»
05.01.2007 22:56:17 / b-vakt
Gleðilegt ár

Hvernig væri nú að sjóða
saman eitt snilldarlegt B-vaktar reunion-djamm svona í tilefni nýja
ársins? Skella sér í betri gallann, hoppa í partýskóna, setja
brilljantín í lokkana og skunda af stað til móts við hina
stórfenglegu B-VAKT 2006! 
Eina sem við þurfum er
staðsetning - tímasetning og auðvitað snilldarfólk af
vaktinni.
Allir sem eru til í
tjúttið rétti upp hönd..........eða pikki inn í
kommentin 
Allir að vera með - annars
eruð þið kassar. Sjáumst 
»
02.11.2006 18:56:40 / b-vakt
Jæja á morgun er komið að því að ég held afmælið mitt. Ef þú vissir
ekki af því þá er það haldið á Barnum og byrjar fjörið klukkan
20:30 og er svo til 24:00. Vona ég að sem flestir mæti.
kveðja
Reiði ljóshærði gaurinn
»
25.10.2006 12:05:42 / b-vakt
Gott fólk, þá er komið að því.
Við hittumst hress og kát á heimili mínu við Bólstaðarhlíð 23f
íbúð 111 um 20:30 í kvöld.
Ég bakaði eina köku og keypti osta, gott væri ef einhver gæti
komið með eitthvað að drekka og kannski eitthvað smá meir.
Hlakka til að hitta ykkur
Kv. Sæja
»
08.10.2006 11:40:43 / b-vakt
Já kæra fólk þá er komið að því, þýðir ekki að tala endalaust um
að hittast og gera svo ekkert í því. Nú verður látið til skarar
skríða.
Við Edda vorum að ræða saman og þar sem engin virðist þora að
bjóða fram húsið sitt til partýhalds fyrir trylltan hóp eins og
okkur (svosem ekki skrýtið) þá datt okkur í hug að hittast bara
eina kvöldstund og hafa það huggulegt. Við vitum að við þurfum ekki
neitt partý né áfengi til að skemmta okkur saman, eins skemmtileg
og við nú erum
Í framhaldi af þessu gætum við svo kannski fundið
heppilegri tíma til að djamma saman.
Ég býð fram íbúðina mína og gaman væri ef hver og einn gæti
komið með eitthvað að narta í.
Hvernig líst ykkur á að hittast miðvikudaginn 25. október. Nægur
tími til stefnu svo allir geta fengið sig lausa úr vinnu eða öðru.
Engin afsökun tekin gild í þetta skiptið.
Endilega kommentið hvað ykkur finnst.
Sæja
»
26.09.2006 13:45:12 / b-vakt
Hverjir ætla að taka eitthverjar vaktir í vetur?
»
10.09.2006 19:53:19 / b-vakt
Jæja ég held að það sé heldur betur kominn tími á einhvern
hittingi hjá okkur. Spurning hvort einhver sé tilbúinn að hýsa eitt
stykki b-vakt í þrusu partý?
Væri líka mjög gaman að reyna að
finna dagsetningu ef fólk er til í bústað? Endilega kommentið ef
þið getið reddað okkur partý 
Kveðja Slauga
»
31.08.2006 15:29:57 / b-vakt
Hvar? Hvenær? Hverjir? Hvernig?
»
18.08.2006 18:59:23 / b-vakt
Jæja, nú fer sumrinu
að ljúka og ég veit að sumir eru í vinnuhugleiðingum og eru á
fullu í að leita sér að vinnu. Ég sá þessa líka frábæru
færeysku atvinnuauglýsingu. Af hverju ekki að sleppa aðeins
af sér beislinu og gerast snikkari í Færeyjum.
Þetta er örugglega vel borgað...
P/F BYGNINGSSNIKKARAVIRKIÐ
BSV
- Snikkari
Søkt
verður eftir snikkara, at byrja skjótast
møguligt, á vælútgjørdum verkstaði, ið arbeiðir við fjølbroyttum
uppgávum.
Vit bjóða:
Eitt spennandi og fjølbroytt arbeiði.
Góðar arbeiðsumstøður.
Eitt umhvørvi í broyting.
Vit ynskja:
At tú hevur sveinabræv sum snikkari.
At tú ert fyrikomandi, ágrýtin.
At tú hevur áhuga fyri fakinum.
At tú kann arbeiða sjálvstøðugt og hevur góð samstarvsevnir.
Ringjast kann til Helga á 213587 ella 312587.
P/F BYGNINGSSNIKKARAVIRKIÐ BSV
Smyrilsvegur 4 • FO-110 Tórshavn
Telefon 31 25 87 • Postsmoga 1087
www.bsv.fo • hj@bsv.fo
"Live a
little"
»
14.08.2006 23:21:28 / b-vakt
Jæja sumarið er víst búið, ótrúlegt en satt. Fannst það
hræðilega fljótt að líða ef ég á að segja eins og er. Væri alveg
til í að taka nokkrar vaktir með ykkur jahh kannski ekki alveg
strax en ég er svo sannarlega til í að hitta ykkur sem fyrst og sem
mest.
Hlakka því allsvakalega til sumarbústaðaferðarinnar okkar í
sept. Planið er að verða ekki svo ölvuð að ég endi á nærbuxunum
einum fata einhversstaðar í ruglinu.
Langar bara að þakka fyrir sumarið og alla skemmtunina. Ef ekki
væri fyrir ykkur hefði ekki verið svona gaman (smá væmni í gangi ég
veit).
En endilega svo við getum verið í sambandi þá væri gaman ef fólk
setti msn-in sín í kommentin.
Hafið það gott.
Kv.Sæja
»
01.08.2006 21:41:36 / b-vakt
Takk fyrir skemmtunina í gær. Þetta var frábært í alla staði, er
rétt að ná mér núna.
Bjarni fær mikið hrós fyrir skipulagninguna.
Setti inn nokkrar myndir. Hlakka til að sjá frá fleirum.
Sjáumst á morgun.
»
14.07.2006 00:31:46 / b-vakt
Myndir úr partýinu hjá Sæju komnar inn. Takk fyrir frábært
kvöld...spurning hver ætlar að sjá um að halda næsta partý ???
»
12.07.2006 10:59:26 / b-vakt
Eru ekki allir komnir í partýgírinn og
tilbúnir að tjútta? Í kvöld mun Særún Ósk Böðvarsdóttir gerast
svo rausnarleg að skjóta skjólshúsi yfir partý B-vaktarinnar. Nú
er um að gera að setja brilljantín í hárið, draga fram skartið
og dansskóna og djamma fram á nótt og helst lengur
ÞEMA!!! ÞAÐ ER RAUTT ÞEMA, ALLIR AÐ MÆTA Í
EINHVERJU RAUÐU
Rauðir sokkar - rauðar buxur - rauð nærföt -
rauður varalitur...bara hvað sem er
Sjáumst eiturhress í kvöld
»
12.07.2006 00:26:00 / b-vakt
Jæja var að setja inn nokkrar myndir frá útilegunni á
Þingvöllum. Vonandi mæta svo sem flestir til Sæju á morgun 
»
03.07.2006 12:32:48 / b-vakt
Jæja krúttin mín þá er þetta allt komið á hreint!!!
Ætlum í útilegu á Þingvelli...látum ekki einhverja smá rigningu
stoppa okkur. Allir að hittast í staffahúsinu í Reykjadal kl 17.30
og förum þaðan stuttu seinna á Þingvelli. Endilega sem flestir
að mæta og muna eftir pollagallanum 
»
Síður:
1 2